Habbóóó
23.12.2006 21:16:26 / habbo

jólin er að koma ... ;)

sæl.. langt síðan maður skrifaði eitthvað hérna mér bara dauðleiðist, skítþunnur, ískalt, og dauðþreyttur. Svona er jólafílingurinn í ár :D hefur verið betri. En samt hef ég skemmt mér konunglega síðustu daga, skellti mér á háskólaball hitti fullt að mjög fínu fólki, og fór í gær að kveðja hann Ragga minn sem er að fara í atvinnumennskuna. hann sýndi mér eitt krúttlegt en hann var búinn að tattoera á sig "MAMMA" haha snilld. Já í gær fórum við á hverfis ég og Darri betur þekktur sem "bjútíkvín" a.k.a Herra Ísland hoho.. en eins og vanalega þá eignumst við oft óvini og hittum einmitt einhverja sem þuftu að eiðileggja þetta yndislega kvöld í gær :S En ég er alveg að sofna og vildi bara óska öllum gleðilegra jóla og vonandi hafiði það gott elskurnar.

» 2 hafa sagt sína skoðun

19.10.2006 11:00:37 / habbo

hpö

..!.. suck on this..


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.08.2006 20:01:04 / habbo

Eyjar 2006

Um helgina við fórum til eyja, og var Darri iðinn við að deyja.

Nonni var gjörsamlega í bandi, á meðan Arnar svaf í hlandi.

Arnar var blautur að vanda, og var með nægan vodka til að blanda.

Darri vildi líkja Nonna við þræl, en satt besta segja tökum við þetta með stæl.

Það var drukkið sig í hel, þar til maður varð alveg skel.

Hafþór vildi ekkert með dömur hafa, þær þurftu að vera flottar það var skýrlaus krafa.

já þetta var fínasta ferð.. bara létt grín nonni.. þú liggur alltaf svo vel fyrir ;) Eitt er víst að þangað verður farið aftur ánæsta ári. En heyrumst eftir nokkra mánuði..


» 10 hafa sagt sína skoðun

30.05.2006 20:56:39 / habbo

mjá :D

Nú er mál að gyrða sig í brók, slá frá sér og gefa þeim einn hægri krók.

Jón þarf að koma inn með skæri, og skapa nokkur marktækifæri.

Inná með Darra hann getur tæklað, eina tveggjafóta og hann getur sóknarmanninn bæklað.

Í liðið vantar neista og blossa, vantar hafþór í starting með nokkra krossa.

Það þýðir ekki að leggja árar í bát, og halda að þetta sé skák og mát

heldur bíta í skjaldarendur, vera liðsheild og haldast í hendur.


» 13 hafa sagt sína skoðun

07.05.2006 20:37:59 / habbo

love you görl :p

tíminn líður, á meðan þú bíður. Þar til að ég mig inn logga, og byrja að blogga. Frá mínu lífi, og hvernig ég stelpurnar hrífi. Fjárans blogg.. verð að blogga fyrir fólið sem virðist enn kíkja á síðuna mína.. Takk fólk fyrir að nenna að kíkja :p Margir að biðja mig um að blogga fyrir sig! en ég er bara alveg kominn úr æfingu.. fucking nice veður ... eins gott að worka tanið þar sem ljósakortið er búið. Þarf að fara fjárfesta mér í nýju.. ! óhætt að segja að sumarið sé komið, fólk farið að grilla líkt og sumarið sé á enda. Skemmtanabann er komið á meistaraflokk.. þannig ég get ekkert drukkið í langan tíma synd og skömm.. en ég tók það alveg út á oliver fyrir stuttu :D en hvað er að frétta af fólki maður er alveg hættur að vera hérna uppá skaga er alltaf í bænum .. fólk má vera almennilegt og bjóða mér á rúntinn. YES ?.. Landsbankadeildinn að byrja sem er bara gott mál og það sem er ennþá betra að það se búið að stofna stuðningmannalið fyrir okkur! Ekkert nema jákvææt Salvar og co.. eigið hrós skilið! Fyrsti leikur á sunnudaginn eftir viku í grindavík og svo KR eins gott fyrir ykkur að koma hvetja mig.. En ég bið að heilsa í bili.. sennilega næstu vikurnar :D ;*

» 9 hafa sagt sína skoðun

22.03.2006 12:58:33 / habbo

jeeeeeeee

sæll skíthæll...

Já grímuball segjiði.. ! Verst að maður er að fara keppa á sunnudaginn og megi því ekki drekka, og frekar myndi ég dauður liggja en að fara edrú á ball!!

Ég er nefnilega aðeins búinn að myndskreyta þetta.. meina pæliði að vera með grímu í flottum búning og hözla gjellu, kyssa hana og þukla á henni og gera allan fjandann.. og enginn veit neitt :D:D Sá þetta í einhverri mynd :) Þetta gæti verið fínt fyrir þá sem eru með lítið sjálfstraust og hvet ég ykkur bara að láta vaða á þetta strákar sem og stelpur..Vil ég líkja þessu við að fara All-in á ekki neitt og vona að fá stóra pottinn, kannski ertu að kyssa einhverja með ágætt body en ógeð í framan, en já nóg um þetta 

En hvað er málið með þennan heimska kulda,það er að nálgast apríl og það er mínus milljón gráður! Ég get vart beðið eftir sumrinu.. chilla með vinum í hita.. Væri hægt að taka grill, bjór og póker á þetta og vera úti í sólinni! en í staðinn fyrir klæðir maður sig upp eins og snjómaðurinn eins og Darri sagði..

Skúlinn kallar.. set hérna inn mynd af mod meðlimum.. vantar mig :/ því ég fékk ekki inngöngu í skólann þessa önn þarna útaf mætinug :( Þessi mynd er síðan 2004 minnir mig og óhætt að segja að þeir hafi verið fallegir og ERU :D

Image hosting by TinyPic


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.03.2006 17:45:01 / habbo

spólaðu til baka..

JÁWW, spólum aðeins til baka og það nánast á byrjun! Ég ætla leiða ykkur í mína æsku aðeins, en þannig er það að móður mín kæra sagði mér fyrir stuttu að þegar ég var lítill hefði ég átt það til að kúka í kopp sem er ekkert óeðlilegt heldur það sem ég gerði við kúkinn :p jújú mikið rétt ég tók hann víst upp og kjamsaði aðeins á honum. Móðir mín sagði að andlit mitt hefði verið út mokkað af skít. En ekki er ég verri maður fyrir vikið! :) Ég vildi bara deila þessu með ykkur :)

En í gær fór ég í bæjinn með Darra og Arnar Má og náðum við í Kötu og fórum í kringluna og keypti ég mér buxur .. :p Fórum við svo í bíó á Pink Panther sem var tussu fín, en Darri og Arnar fóru reyndar á new world eða eitthvað álíka og líkti Arnar þessu við að lesa leiðinleg bók hehe.. En Darri var víst hrifinn af leikkonunni sem lék í myndinni ekki í fyrsta skipti sem það skeður, því hann var in love útaf gjellunni í the girl next door.. sem er jú skiljanlegt..!!

oss við erum að tala um föstudag á morgun ég er hreinlega byrjaður að munda danssporin fyrir laugardaginn!! újee...

Sjáiði svo okkur strákana! :D

Image hosting by TinyPic

(Arnar, Andri og Ég)


» 6 hafa sagt sína skoðun

15.03.2006 12:44:01 / habbo

tú dey is the dey!

Kom heim í gær og sá bómul and shit á víða dreif í herberginu mínu og ég hugsaði hvur djöfullinn það er búið að éta bangsann sem Kata gaf mér, en svo fann ég bangsann og allt í lagi með hann, því fór ég að grennslast í málinu og elti bómulinn um húsið og endaði hann í þvottahúsinu og sá ég nýju skónna mína sem ég keypti fyrir um viku handónýta, búið að éta skónna mína. Það hefði verið ljótt ef þetta hefði verið heimaverkefni sem ég ætti að skila.. Ekki að kennarinn myndi fara trúa mér ef ég segði við hann "hundurinn át heimaverkefnið mitt".. eheh en hinsvegar skemmtileg afsökun. En skapgóður eins og ég er, þá hélt ég ró minni og mamma kom til mín og sagðist ætla borga þetta, sem er nú bara eins gott fyrir hana :D og því ætla ég í bæjinn á eftir að kaupa mér skó eða buxur :)

heheheheheh fann þetta hérna fyrir neðan á b2.is! Greinilega einhver snillingur sem var með þessari stelpu sem skrifaði þetta á síðuna sína.. :D ljótt að segja þetta en þetta fyrra átti svo vel við mig fyrir um þremur árum, því fátt komst að annað en counter-strike!! hehe það er gaman að þessu, en ég veit að ég er ekki einn um það að strákar gefi sér of mikinn tíma með viðhaldinu (tölvunni)..

-Okei þú og tölvan eruð búin að þekkjast lengi og eigið ykkur sögu, en hvernig væri að prófa að slökkva á henni öðru hvoru, loka counter strike, msn og þessu rugli og vera sætur við stelpuna þína? Ég held þú lifir af...

-Reyndu að eyða allavega smá tíma á dag með henni einni, og sá tími þarf ekki endilega að fara í kynlíf!


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.03.2006 22:37:30 / habbo

Hví að hætta, þegar maður hefur andskotann ekkert betra að gera ??

Já yfirleitt er sagt að maður hætti á toppnum, en málið með mig að ég var aldrei á toppnum í blogginu og ætla því að draga framm pensilinn og rita örfá orð um komandi framtíð:)

Yee.. hvað ætti maður að byrja á.. Allavegana er ég að fara flytja í bæjinn í Ágúst með Gaua :P ég er að fara í Iðnskólann Reykjavík á Tölvufræðibraut, loksins að læra eitthvað sem mér finnst skemmtilegt :) Og auðvitað eru heimsóknir til okkar vinana vel þeignar :P Við fengum íbúð rétt hjá Smáralind fine íbúð :D.. satt best að segja get ég harla beðið eftir að fara í bæjinn og sleppa frá þér MAMMA!!! :** Og ég efa ekki að þú sért farinn að telja dagana niður þar til að ég fari.. :D

Svo er maður að fara til Þýskaland 3 Apríl újeee.. og svo er stefnt að Benedorm í september.. en þá þarf maður að byrja spara, og það allverulega :D

Annað á dagskrá er það að ég er byrjaður að hlaupa eftir aðgerðina sem ég fór í.. og allt að gerast, maður er aðeins búinn að þyngjast, en það er ekkert til að hafa áhyggjur af því maður hleypur þetta af sér!

Svo á laugardaginn er partý hérna hjá mér. En þá mun mfl ÍA koma sér vel fyrir og sötra á ísköldum Carlsberg. En mun þessi hópur skiptast í tvo hópa en þá Kári Steinn og fleirri góðir í annað hornið, en svo við töffararnir í hitt.. Darri, helgi Valur, Jón Vilhelm, högni, Arnar, Andri, heimir.. (Gummi Bö) innan sviga :D neij léttur djókur :** Og vil ég taka það fram að ekkert fífl skal hringja í mig og biðja um að fá að koma.. því ég þetta er bara mfl partý, en þó eru ýmsar undantekningar gerðar, en mér þarf þá að líka ansi vel við hann/hana :p

Sjáiði svo strákinn að búa til pönnukökur, maður kann ýmislegt fyrir sér.. (tek að mér að baka fyrir fólk, gegn gjaldi)..

Image hosting by TinyPic


» 4 hafa sagt sína skoðun

08.03.2006 12:55:29 / habbo

Bloggið ég ætla að kveðja, en ég þori að veðja. Að ég komi aftur, sem ólýsandi kraftur :P

Jááá .. Valdís ég lofaði þér bloggi en ég lofaði ekki að það væri eitthvað skemmtilegt eða langt ;)

En eina sem ég vil segja í þessu bloggi er það að ég er að pæla hætta þessu blogg dæmi;) en á ef til vill eftir að koma með eina og eina færslu en það örsjaldan.. :P Segjum þetta bara gott .. Outside.. :D


» 6 hafa sagt sína skoðun

01.03.2006 12:35:57 / habbo

YEEE

sá eitt skemmtilegt video sem minnti mig óneitanlega á Jón á sínum yngri árum..  varð að sýna ykkur það!

heheh svona var Jón Vilhelm þegar hann var uppá sitt besta í tölvuleikjunum hrækjandi og læti..

http://b2.is/?sida=tengill&id=151221 (horfið á allt)

Auglýsing: Fyrir þá sem eru að huga að námi erlendis og vilja fá styrk útá fótbolta.. Breskur skóli að leita að leikmönnum! http://www.fotbolti.net/fullStory.php?id=33080


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.02.2006 15:22:33 / habbo

kjútípæ

Það er mér hulin ráðgáta afhverju það er ekki hægt að gera suma hluti skemmtilega með smá ímyndunarafli og vinnu. Meina tökum ballið á fimmtudaginn sem dæmi, hvernig væri það ef við myndum leigja froðuvél og fá 2 palla sem eru girtir af.. og hafa stelpur þar inní á bikiní ... Fá svona smá útlenskan stemmara í þetta.. Og annað, hafa ekki skóla á föstudögum, einhver staðar heyrði ég að útí Bandaríkjunum væri ekki skóli á föstudögum.. úff hversu nice væri það.. ! Ég myndi alveg leggja það á mig að fá einn tíma í viðbót hvern dag ef ég myndi fá frí á föstudögum í skólanum.. Það yrði loksins gaman.. En alltaf þarf þetta að vera svo hversdagslegt og leiðinlegt.. Og annað, afhverju er ekki hægt að kaupa pizzasneiðar í matsölunni..  já þetta eru ýmsar vangaveltur í sambandi við skólann.. það er bara eins og ekkert sé gert til að láta nemendum skólan líða vel.. Já það er svoo margt sem hægt er að væla yfir enda svo margt sem hægt er að bæta..! ;) ég er viss um að ég er ekki einn um þessar tillögur sem ég er að setja hérna framm.. ég hef sennilega komið með þetta áður en segjið mér AFHVERJU ER EKKI BJÓRKVÖLD eins og nánast allsstaðar annarsstaðar.. !

En Yeee, veðrið er aldeilis að leika við okkur þessa stundina, sólin leikur við hvurn sinn fingur og er þetta tilbreyting frá myrkrinu og skítnum sem hefur verið undanfarið.. Þetta minnir mann á gömlu góðu dagana þegar maður fór með boltann niðrá svæði með kool aid í 2lítra flösku og fór í blokk.. good times.. ;) heyrði segjum þetta bara gott í bili er þaggi bara..

Ég lofaði Darra að setja sæta mynd af honum inn og óhætt að segja að þeir séu sætir þarna Darri og Arnar ;)

Image hosting by TinyPic


» 9 hafa sagt sína skoðun

27.02.2006 21:24:51 / habbo

Yess sælar sælir

Þið segið það ...

Helginn að baki og var hún tussu fín.. förum aðeins yfir hana .. föstudagur var bara farið í aðgerð og svoo aftur heim seinna um daginn og kata mín til mín að hugga mig ;) yeee .. svooo á laugardaginn fór ég í bæjinn að djamma með Ragga og Alla, og beilaði ég aðeins á þeim :/ og fór til kötu og guddu og fórum við til einhverja gaura.. Sunnudagur bara chill eins og hann á að vera..

En vikan sem er framundan er flott.. á miðvikudaginn eru opnir dagar.. sem hentar mér vel því þar sem ég á við athyglisbrest að stríða þá hentar það mér mjög vel að hafa öðrisi daga.. :P og svo á fimmtudaginn er árshátíðinn Yeee!

Parrer where is fucking Party :P ég talaði við mömmu áðan hún var eikkað þver á að leyfa mér að halda það.. en mamma þegar þú lest þetta, þá er eins gott að þú leyfir mér! annars fer ég að spenna byssur..! En þá verður þetta bara MOD party sammála ? skemmtilegustu partýinn eru þegar við strákarnir erum bara saman það er bara þannig.. !

En stelpur óskast til að þrífa, og fá þá að vera í nærvist okkar í partýinu..

Er ekki almennt stemmari fyrir þessu balli á fimmtudaginn ?.. menn eitthvað ósáttir við DJ Páll óskar ?..  en ætla fara kippa í djásnið..  síja..


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.02.2006 12:45:32 / habbo

Jááá mönnum lítt skemmt...

Gúddý dag..

Þetta er ekki alveg nógu gott sem maður er að heyra, að Borgnesingar séu að hóta öllu illu og segjandi að ákveðnir aðilar séu slakir og ætli að taka í hann og eitthvað..

 já þetta er ekki alveg nógu gott.. Menn eru víst farnir að tala um það niðrí bæ að það eigi að taka í ákveðna aðila og sjáum við hvað setur í þeim málum.. En svona fíla ég ekki.. ég hef lítið haft til málanna að segja gagnvart fólki sem býr í Borganesi og margir fínir þar en þegar einhverjir tappar eru að rífa sig þá er mér misboðið.. má vera að ég sé að fara með fleipur að þetta séu borgnesingar og býðst ég þá afsökunar, en ég veit allavegana að nokkrir af þeim eru á vistinni.. Maður hélt að rígurinn væri að mestu farinn.. kannski að þessir (vistabúar, borgnesingar) vilji hafa þetta eins áður var..

Hvað segiði um þetta, einhverjar skoðanir ?

En nóg um þetta.. Eitthvað um að vera um helgina.. menn ekki klárir í einhverja skemmtun ? Látið vita :D

OSS OSS, svo á morgun er maður að fara 13:40 í aðgerð á hnéinu.. :S vonandi einhver bjóði sig fram í að vera góð við mig á meðan ;):P


» 18 hafa sagt sína skoðun

23.02.2006 00:13:07 / habbo

rifja upp time

YES ég lofaði einhverjum myndum hérna ætla koma með smá kem með fleirri :p tjekkit nokkrar frá Tenerife :)

Darri og Stebbi útá svölum :p *sætur svipur Darri* :D

Image hosting by TinyPic

 

Hérna er mynd af Lexa sem vildi bara vera í skugganum og af Jón steinari sem reykti í flugvélinni :D

Image hosting by TinyPic

 

Hérna er mynd af sundlaugunum á hótelinu :D

Image hosting by TinyPic

 

Benni og Stebbi :p út på tene...

Image hosting by TinyPic

 

heheh ekki veit ég hvað Arnar er að gera þarna hehe

Image hosting by TinyPic

 

Darri og Andri pumpin fresh eftir einhvern leik :p

Kem með fleirri seinna.. ef áhugi er fyrir þá skal ég henda inn nImage hosting by TinyPicektar myndum af mér ;) smá djodd ;*


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7